Archive for 2006

Dec 21 2006

‘Stórfyrirtæki, lýðræði og beinar aðgerðir’ eftir Sigurð Harðarson


1

Hlutverk stórfyrirtækja er alltaf að færa eigendum sínum aukinn auð og völd. Því stærri og umsvifameiri sem fyrirtæki verða því meiri áhersla verður á þetta. Sama á við um öll kerfi og stofnanir manna sem ætlað er að stýra samfélagi, því stærri sem þau verða, því meira snúast þau um að viðhalda sjálfum sér. Má vera að til séu stór fyrirtæki sem þetta á ekki við um en þau eru svo fá að þau ná ekki að hafa áhrif á valdaskipulag markaðarins. Read More

Nov 17 2006

Leiðréttingar á tólf alhæfingum um eðli og áhrif beinna aðgerða


STOP!

 

Andspyrna.org

Þegar vandamál koma upp í lýðræðislegu samfélagi þannig að fólki finnst vegið að frelsi sínu eða réttlætiskennd sinni misboðið, er fyrsta hugsun flestra að ríkisstjórnin eigi að gera eitthvað í málinu. Þegar hinsvegar þessi sama ríkisstjórn eða einhver stofnun hennar bera ábyrgð á óréttlætinu er hugað að kosningum – að kjósa betur næst – vitandi að í grundvallaratriðum mun það ekki breyta neinu. Read More

Sep 27 2006

Vantaði bara leiðtoga?


Helga Katrín Tryggvadóttir JokulsarganganHlemmi2609200.preview.jpg

Í gærkvöldi, þann 26.september, söfnuðust einhvers staðar á bilinu 8.000-15.000 manns saman í miðbæ Reykjavíkur til að mótmæla virkjunar- framkvæmdum við Kárahnjúka. Mörgum myndi finnast það seint í rassinn gripið þar sem til stendur að byrja að hleypa vatni í Hálsalón tveimur dögum síðar. Hvers vegna er fólk tilbúið að mótmæla framkvæmdunum nú þegar það virðist vera orðið of seint? Read More

Aug 14 2006

‘Er Mogginn “öfgafullur”?’ eftir Hlyn Hallsson


Ég hef ekki lagt það í vana minn að lesa hinn nafnlausa dálk sem kallast “Staksteinar” í Morgunblaðinu. Þessi skrif sem eru á ábyrgð ritstjóra Morgunblaðsins Styrmis Gunnarssonar eru nefninlega gjarnan svo vandræðaleg og full af bulli að óþarfi er að leggja sig niður við að lesa eindálkinn. Þegar maður sér hinsvegar sjaldan Morgunblaðið og eitt eintak berst svo í hendurnar á manni til Berlínar, fellur maður í þá gryfju að lesa blaðið helst upp til agna og svo fór með mig og Moggann frá fimmtudeginum 10. ágúst. Þar fer hinn ónafngreindi Staksteinahöfundur mikinn við að lýsa ógurlegri vandlætingu sinni á “öfgafullum” náttúruverndasinnum (sem eru víst útlenskir í þokkabót).

Þetta fólk hefur verið að mótmæla mesta slysi íslandssögunnar af manna völdum: Kárahnjúkavirkjun. Hinn nafnlausi höfundur Staksteina bendir lögreglunni á að “spila” ekki uppí hendurnar á mótmælendum, því það sé einmitt það sem þeir vilji. Svo er haldið áfram í dálkinum að telja upp hvað þessi virkjun sé ofboðslega lögleg og að yfirgnæfandi meirihluti alþingismanna hafi samþykkt hana og svo framvegis.

Friðsamleg mótmæli Read More

Aug 10 2006

Harkalegar aðgerðir yfirvalda á Íslandi


Einar Rafn Þórhallsson
Morgunblaðið
Ágúst 2006

Undanfarin misseri hefur lögreglan verið með mjög mikla löggæslu á hálendinu, nánar tiltekið norðan Vatnajökuls á svonefndu Kárahnjúkasvæði. Þar er mesta hitamálið Hálsalón sem er 57 ferkílómetrar að stærð og mun rafmagnsframleiðslan af þessum virkjanaframkvæmdum renna óskipt í að knýja álver Alcoa í Reyðarfirði.

Þetta sumar hefur verið mikill ferðamannastraumur á svæðið norðan Vatnajökuls þar sem fólk vill sjá og njóta stórbrotinnar náttúru sem senn fer undir vatn. Einnig hefur safnast saman stór hópur af fólki, bæði íslensku og erlendu, til að mótmæla þessum framkvæmdum ríkisstjórnarinnar. Í júlí stóðu Íslandsvinir og Saving Iceland fyrir fjölskyldubúðum við Snæfell þar sem yfir 200 manns tjölduðu og sýndu hug sinn í verki. Búðunum lauk 31.júlí en staðfastur hópur hélt áfram að mótmæla. Allan tímann hefur lögreglan haft mikinn viðbúnað sökum mögulegra mótmæla.

Read More

Aug 05 2006

Ógnandi framkoma lögreglu


hrund-olafsdottir Fréttablaðið

„Mér var hótað handtöku, það voru teknar myndir af okkur í tjaldbúðunum við Snæfell, ég var krafin um að sýna ökuskírteini og það var skoðað inn í bílinn hjá mér,” segir Hrund Ólafsdóttir sem var stödd í fjölskyldubúðum við Snæfell í grennd við virkjanasvæðið á Kárahnjúkum um síðustu helgi. „Mér er stórlega misboðið hvernig lögreglan kom þarna fram við venjulega borgara og erlenda gesti.”

Hrund segir að lögregla hafi viðhaft ógnandi framkomu við fólk sem var þarna statt til að taka þátt í friðsamlegum mótmælum og henni kom á óvart hversu margir þeir voru á svæðinu, en hún sá sjálf um það bil tíu lögregluþjóna.

„Við friðsama mótmælastöðu á landi í almenningseign kom lögregluþjónn til mín og hótaði mér handtöku ef ég færi lengra. Fólki er frjálst að vera þarna og því get ég ekki sætt mig við þessa hótun.” Hrund segir að lögreglumenn í ómerktum bílum hafi tekið myndir af fólki og neitað að upplýsa tilganginn með því. Svo þegar Hrund var á leið burt af svæðinu var hún stöðvuð af lögreglu og krafin um ökuskírteini. „Á meðan gengu sex lögreglumenn kringum bílinn og voru að skoða inn um rúðurnar. Maður veltir fyrir sér hver það er sem borgar þessa löggæslu og hver ákveður að hafa svona marga menn á svæðinu. Mér finnst þessi framkoma lögreglunnar alveg með ólíkindum.”

Jul 11 2006

Frumvinnsla áls – Lýsing á hinni mengandi og orkufreku framleiðslu álbarra


Hlaðið niður PDF skránni hér.

Þýtt úr “Foiling the Aluminum Industry

May 29 2006

Íslandsvinir spyrja þig


Upplýsingabæklingur Íslandsvina.

Vissir þú að …

1)…eftirfarandi svæði eru í bráðri hættu eða verða fyrir umtalsverðu raski vegna stóriðjuframkvæmda; Torfajökulssvæðið, Landmannalaugar, Skjálfandafljót, Skaftá, Jökulsár Skagafjarðar, Kerlingafjöll, Brennisteinsfjöll, Krísuvík, Langisjór, Þjórsá, Aldeyjarfoss, Lagarfljót, Þeistareykir, Gjástykki, Töfrafoss, Lindur, Jökla og Dynkur. Ótal fleiri svæði eru í bráðri hættu.

2)…Landsvirkjun hefur sótt um rannsóknarleyfi á eftirfarandi stöðum: í Brennisteinsfjöllum, á Gjástykki og nágrenni. Einnig á vatnasviði Skjálfandafljóts, Tungnaár ofan Sigöldu, Þjórsár neðan Búrfells, Efri hluta Skaftár og Vestari- og Austari Jökulsár í Skagafirði.

3)…önnur raforkufyrirtæki hafa sótt um rannsóknarleyfi á Reykjanesskaga, í Reykjadölum, í Rangárþingi ytra, í Kerlingafjöllum, í Brennisteinsfjöllum, á Vatnasviði Hólmsár í Skaftárhreppi, á vatnasviði Austari-og vestari Jökulsár í Skagafirði, Skjálfandafljóti, á og við Grændal og í Fremrinámum. Read More

May 09 2006

Partí umhverfisverndarsinna 15. maí


Alþjóð er boðið í Partí þann 15. Maí við Nordica Hotel til þess að mótmæla þeirri stefnu sem ríkisstjórnin og frammámenn viðskiptalífsins hafa markað í iðnaðar og viðskiptamálum.

Hafið þið velt fyrir ykkur hvers vegna svo fáir mæta í íslensk mótmæli? Við höfum svarið við því. Það er vegna þess að þau eru svo leiðinleg og molluleg að þau eru betur fallin til þess að drepa niður baráttuandann fremur en hitt.

Einhverra hluta vegna virðist hafa skapast hefð fyrir því að íslenskir mótmælendur standi stirðir og þegi þunnu hljóði hvar sem þeir koma saman, og í okkar huga vekur það spurningar eins og: hver hlustar á þá sem þegja? Þessu viljum við breyta og höfum við því ákveðið að gera tilraun til þess þann 15. Maí. þegar The Economist heldur ráðstefnu sem kostuð er af ALCOA, FL Group, Landsbankanum og KOM (sjá nánar: http://www.ogmundur.is/news.aspid=658&am… Read More

Mar 30 2006

Alcoa í þjónustu bandaríska hersins í Írak


F 35 Lightning II Fighter Jet Ur Smidju ALCOA Einar Ólafsson
Friður.is
29. mars 2006

Þingmaður heimsækir Alcoa

John P. Murtha heitir þingmaður í fulltrúadeild bandaríska þingsins. Hann er demókrati frá Pennsylvaníu. 22. ágúst 2005 birtist á vefsíðu hans frétt sem hefst á þessum orðum: „Formaður þingnefndar um fjárveitingar til varnarmála fékk í dag upplýsingar um nýja tækni sem gæti staðið bandaríska hernum til boða til notkunar á landi og í lofti.“

Þetta var þingmaðurinn John P. Murtha og hann fékk þessar upplýsingar í heimsókn sinni til tæknimiðstöðvar Alcoa í Upper Burrell, Westmoreland County í Pennsylvaníu. Þar sýndu yfirmenn og tækni- og vísindamenn Alcoa honum ýmsar tæknilegar lausnir sem gætu nýst farartækjum hersins á landi og í lofti. „Við höfum nokkra af skörpustu hugsuðum heims hérna í vesturhluta Pennsylvaníu og það er ánægjulegt að sjá að her okkar fær notið slíkrar vísindalegrar framsýni og sérfræðiþekkingar“, er haft eftir þingmanninum.

Read More