Aug 22 2008

This post is also available in: English

Dauðsföll á Hellisheiði þar sem láglaunaðir verkamenn búa við ómannúðlegar aðstæður

Worker accomodation Fyrir tveim dögum síðan létust tveir Rúmenskir verkamenn á Hellisheiði. Mennirnir köfnuðu inni í röri þar sem þeir unnu vegna stækkunnar jarðvarmavirkjunar Orkuveitu Reykjavíkur á Hellisheiði (1). Saving Iceland telur að alvarleg slys á borð við þetta séu nánast óumflýjanleg ef litið er til þeirra aðstæðna sem Austur Evrópskir verkamenn búa við. Framkvæmdirnar á Hellisheiði eru af stórum hluta til unnar af Pólskum og Rúmenskum verkamönnum sem búa í vinnubúðum nálægt framkvæmdasvæðinu. Rúmenarnir tveir sem létust unnu fyrir Altak, samstarfsaðila Orkuveitunnar.

Hér er samantekt á aðstæðunum sem verkamennirnir búa við (2).

  • Þeir vinna 72 stunda vinnuviku, stundum allt að 17 tíma á dag, jafnvel um vetur.
  • Þeir vinna á bilinu 3-6 mánuði og fá svo þriggja vikna frí áður en þeir koma aftur til að vinna að sama verkefni eða öðru svipuðu verkefni hér á landi eða annars staðar.
  • Þeim er ekki borgað eftir íslenskum viðmiðum, heldur Rúmenskum, sem þýðir að mánaðarlaun þeirra eru u.þ.b. 2300 Evrur (fyrir 72 tíma vinnuviku)
  • Þeim er samt sem áður borgað í íslenskum krónum, frekar en Evrum. Vegna lágs gengis krónunnar þurfa þeir því að horfa á fjórðung launa sinna hverfa.
  • Þeim er gert að vera í búðunum og fá aðeins að fara einu sinni til Reykjavíkur á mánuði.
  • Búðirnar eru verri en fangelsi – þar er engin aðstaða til tómstunda og engin aðstaða til íþrótta og heilsuræktar. Meira að segja sjónvörpin þeirra virka ekki vegna lélegs sambands.
  • Beiðni þeirra um smávægis frístunda aðstöðu eins og fótbolta eða borðtennis hefur verið hafnað.
  • Þeim sem kvarta ,,of mikið” er hótað uppsögnum
  • Verkamönnunum hefur verið sagt að stækkun Hellisheiðarvirkjunar sé frakvæmd til þess að útvega orku fyrir Reykjavíkurborg. Það sanna er þó að virkjunin er nú stækkuð til þess að útvega orku fyrir stækkað álver Norðuráls á Grundartanga.

,,Það kemur ekki á óvart að dauðslys sem þessi eigi sér stað meðal verkamanna sem vinna 17 tíma vaktir. Það er kaldhæðnislegt að fyrirtæki í eign almennings Orkuveita Reykjavíkur, sem gefur sig út fyirr að vera hreint og grænt, framkvæmi starfsemi sína með því að arðræna erlent verkafólk á þennan hátt. Ekki nokkur Íslendingur myndi vilja vinna undir þessum kringumstæðum. Þeir einu sem taka vinnu sem þessari eru þeir sem hafa litla sem enga möguleika og hafa engra annarra kosta völ til að halda uppi fjölskyldum sínum í heimalandinu” segir Jaap Krater, talsmaður Saving Iceland.

,,Við höfum bent á þetta í síðustu aðgerðum okkar á Hellisheiði (3,4) og Orkuveitan hefur enn ekki reynt að sýna fram á að aðsæður séu eitthvað öðruvísi. Nú þegar nokkrir verkamenn hafa dáið á þennan hræðilega hátt, verður að gera eitthvað til að stöðva þessa hrikalegu hegðun Orkuveitunnar, fyrirtækis í eign Reykjavíkurborgar” segir Jaap.


Heimildir

Aðbúnaður verkafólksins
Worker accomodation
Worker accomodation
Pipe welding site
Pipe the Rumanians suffocated in

Leave a Reply