júl 24 2007

Saving Iceland stöðvar umferð að álveri Rio Tinto-Alcan í Hafnarfirði

LANDSVIRKJUN Á AÐILD AÐ ÁLVERI RIO TINTO-ALCAN Í SUÐUR AFRÍKU, SEM ER KEYRT ÁFRAM MEÐ KOLUM OG KJARNORKU

Fréttatilkynning

HAFNARFJÖRÐUR – Saving Iceland hefur lokað aðgangi að álveri Rio Tinto-ALCAN í Straumsvík. Um það bil 20 mótmælendur hafa læst sig saman og klifrað upp í krana á vinnusvæðinu. Saving Iceland mótmælir fyrirhuguðu álveri Rio Tinto-ALCAN á Keilisnesi eða Þorlákshöfn, stækkun álversins í Hafnarfirði og nýju álveri í Suður-Afríku sem verður keyrt áfram af kolum og kjarnorku.

,,Mótmæli gegn Alcan hafa skilað sínu. Hafnfirðingar höfnuðu að sjálfsögðu fyrirhugaðri stækkun í Straumsvík og nýlega varð fyrirtækið að hætta þáttöku sinni í báxítgreftri í Kashipur, Norðaustur Indlandi, vegna mótmæla gegn mannréttindabrotum þeirra og umhverfiseyðingu. Alcan hefur verið ásakað fyrir menningarútrýmingu í Kashipur , þar sem námur og stíflur hafa þegar neytt 150.000 manns til þess að yfirgefa heimkynni sín, mest megnis innfædda . Norsk Hydro hætti þáttöku sinni í verkefninu eftir að lögreglan pyntaði og kveikti í mótmælendum, og þá kom Alcan inn í málið.” segir Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson frá Saving Iceland.

,,Þetta mál og önnur svipuð, sem og þáttaka Alcan í hergagnaframleiðslu sýnir hversu miskunnarlaust fyrirtækið er. Yfirtaka Rio Tinto eykur alls ekki líkurnar á því að framkoma Alcan batni.”

,,Rio Tinto-ALCAN hefur alls ekki misst áhugann á byggingu nýs álvers á Íslandi. Hafnarfjörður er enn inni í myndinni, þrátt fyrir niðurstöðu íbúakosningarinnar í vor og nýtt álver verður mögulega reist í Þorlákshöfn eða á Keilisnesi. Saving Iceland hafnar þessum framkvæmdum og lýsir yfir fullum stuðningi við íbúa Suður-Afríku, sem berjast gegn álveri Rio Tinto-ALCAN, sem keyrt verður áfram á kolum og kjarnorku. Landsvirkjun er einnig viðriðin verkefnið , því er mjög nauðsynlegt að Íslendingar hafni þessari síð-nýlendustefnu sem gjöreyðileggur bæði umhverfi og samfélög.” segir Snorri

Heimildir um tengsl Alcan við stríðsrekstur og hergagnaframleiðslu, samning Landsvirkjunnar í Suður-Afríku og sögu Rio Tinto eru meðfylgjandi þessari tilkynningu.

TENGSL ALCAN VIÐ HERGAGNAFRAMLEIÐSLU
Málmur frá Rio Tinto-ALCAN er seldur til margvíslegra nota í stríðsrekstri. ALCAN framleiðir t.d. ál fyrir EADS (European Aerospace and Defense and Space), sem framleiðir herþyrlur, orrustuþoturnar Euorofighter Tycoon, Mirage F1, EF18 Hornet og aðrar þotur . EADS er einnig leiðandi framleiðandi flugskeyta . Samningar milli EADS og ALCAN eru kynntir sem samningar milli Airbus og ALCAN, til þess að hylma yfir aðild ALCAN að stríðsrekstri , en það er þekkt leið álfyrirtækja að fela hergagnaframleiðslu sína undir heitinu eldflaugaframleiðsla. Á sama tíma verður að markaðssetja hergögnin og þess vegna eru myndir af orrustuflugvélum birtar á eldflaugahluta heimasíðu ALCAN .

EADS fullyrðir á heimasíðu sinni að vörur fyrirtækisins séu seldar til landa þar sem “sala á hátækni flughernaðartólum fer fram á ábyrgan hátt” Fyrirtækið byggi á “áratuga reynslu í herflugvélaiðnaði” En er fyrirtæki trúverðugt sem er svo siðblint að það birtir á sömu heimasíðu myndir frá Þýskalandi á tímum nasismans, þar sem bæði Fyrri Heimstyrjaöldin og flugvélar Nasista eru lofaðar hástöfum?

RIO TINTO-ALCAN: ÁL TIL ÍRAKS
ALCAN sér Boeing fyrir “úrvals, afkastamiklum álafurðum” . Boeing framleiðir herþyrlurnar Apache og Chinook sem eru notaðar í Írak, en einnig minna þekktar vörur t.d. “Small Diameter Bomb” og “Joint Direct Attack Munition” . Einnig eru samningar milli Alcan og Dassault , fransks hergagnaframleiðanda, sem framleiðir margskonar orrustuflugvélar úr áli . Þar að auki hefur ALCAN lagt sig sérstaklega fram við að kynna fyrirtækið fyrir sjóhernaðarstofnunum .

RIO TINTO-ALCAN: PLÖN FYRIR AFRÍKU
Rio Tinto-ALCAN hefur skrifað undir samning við Ríkisstjórn Kamerún um að stækka Alucam álverið um 150.000 tonn á ári, auk þess að reisa nýtt 150.000 tonna álver. Lom Pangar stíflan, sem er við það að verða reist, mun sjá um orkuframleiðslu fyrir álverin . Alcan er með mörg önnur verkefni á teikniborðinu í Afríku – “Greenfield” verkefnið þeirra inniheldur Kamerún, Ghana, Guinea, Madagascar og Suður-Afríku. “Greenfield” stendur fyrir það þegar ósnert náttúra er eyðilögð fyrir námugröft, grunngerð, álbræðslur og stíflur.

AÐSKILNAÐARSTEFNAN Í SUÐUR AFRÍKU, ESKOM OG LANDSVIRKJUN
ALCAN var virkur þáttakandi hinni illræmdu aðskilnaðarstefnu í Suður Afríku á árunum 1949-1986 . Nú vill fyrirtækið snúa aftur og reisa álver á nærri því skattfrjálsu svæði, “Coega Development Zone”, nálægt Port Elizabeth. Álverið verður keyrt áfram á kolum og kjarnorku frá Eskom, en fyrirtækið er eitt stærsta raforkufyrirtæki í heiminum. ,,30% fátækra samfélaga í Suður Afríku hafa ekki aðgang að rafmagni, en samt sem áður er til nóg rafmagn til að reka álver” segir Lerato Maragele, aðgerðasinni frá Suður Afríku sem heimsótti Ísland á vegum Saving Iceland.

Elkom er “systurfyrirtæki” Landsvirkjunnar , en Landsvirkjun stefnir á að taka þátt í álversframkvæmdunum í Suður Afríku og færa svo út kvíarnar í Afríku. Því er líklegt að Landsvirkjun muni reyna að selja sérfræðikunnáttu sína til ýmisa verkefna tengdum vatnsafls raforkuframleiðslu Eskom í Mósambík, Úganda og Kongó . Einnig er líklegt að fyrirtækið muni reyna að vinna að gerð stíflu í Kongó ánni, en hún verður tvisvar sinnum stærri en Three Gorges stíflan í Kína, og mun leggja regnskóa Mið Afríku í rúst.

BOTNLAUS SAKASKRÁ RIO TINTO
Við getum auðveldlega sýnt fram á að ALCAN tekur virkan þátt í hergagnaframleiðslu og stefnir á innrás í Afríku, jafnt sem á Íslandi. Núna hefur fyrirtækið verið keypt af Rio Tinto, sem er stærsta einkarekna námufyrirtæki í heiminum, og hefur “lengi verið gagnrýnt fyrir gróf mannréttindabrot sem ná aftur til þáttöku þeirra í aðskilnaðarstefnunni í Suður Afríku.”

Nokkur dæmi um mannréttindabrot Rio Tinto.
Rio Tinto hefur vitandi neytt starfsmenn sína til að starfa í banvænum gullnámum sínum í Brasilíu, og njósnað um og rekið meðlimi verkalýðsfélaga. Einnig eru dæmi um að fátækir heimamenn í leit að gulli í námum Rio Tinto hafi verið skotnir af öryggisvörðum Rio Tinto .

Rio Tinto hefur haft aðild að málaliðahneykslum. Ríkisstjórn Papúa Nýju Guineu réði í samstarfi við ALCAN, fyrirtækið Sandline International, sem er einkarekinn, óháður málaliðaher, til að berjast gegn íbúum eyjunnar Bougainville. Herinn er mest megnis skipaður fyrrum breskum og suður afrískum sérsveitarmönnum, en herinn hafði aðild að borgarastyrjöldunum í Angóla og Sierra Leone. Íbúar Bougainville höfðu lokað námu vegna hrikalegra umhverfisskemmda og hafa nú farið í mál gegn Rio Tinto fyrir skemmdirnar og stríðsglæpina sem málaliðaherinn fyrirtækisins framdi. Í ágúst 2006 hafnaði áfrýjunnardómstóll Bandaríkjanna beiðni Rio Tinto um að málinu yrði vísað frá.

Sönnunargögn um glæpsamlega aðild ALCAN að hergagnaiðnaðinum – Á þeirra eigin vefsíðum

„A Brief Look at EADS“ Aðal hergagna viðskiptavinur ALCAN – Myndband

EADS stæra sig af framlagi sínu til flughers Hitlers og nánst öllum stríðum Tuttugustu aldarinnar – Video

—————

Heimildir:

– S. Das & F. Padel, “Double Death – Aluminium’s Links with Genocide”, Economic and Political Weekly, Des. 2005, sjá einnig á /doubledeath
– Chandra Siddan, “Blood and Bauxite”, Montreal Mirror, Nov 20-26, 2003, Vol. 19 No. 23.
– “Smelter Expansion on Landfill?”, Iceland Review, June 20th 2007.
– RUV News, 26-02-2007, http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item145391/. Athugið að RUV hafa ruglað saman Alcoa og Alcan.
– EADS vefsíða, http://www.eads.com/1024/en/businet/defence/mas/combat_aircraft/combat_aircraft.html
– EADS auglýsingamynd, “A Brief Glance at EADS”, http://www.eads.com/xml/content/OF00000000400004/1/10/41434101.mov
– AFX News, 13 júní, 2007, http://www.abcmoney.co.uk/news/13200786914.htm
– Alcan Press Release, “Company To Provide Critical Aluminum Materials For Full Range Of Aircraft Including A380”, 13. Júní, 2007, http://www.decisionplus.com/fr/fintools/stock_news.asp?Market=TSE&Symbol=AL&NewsID=20070613/021501
– http://www.alcanaerospace.com/Aerospace/aerospace.nsf/html/FWFGHOME?Open&LG=1, dd. 22-7-2007.
– EADS auglýsingamynd, “90 years of aircraft history in Augsburg”, http://www.eads.com/1024/en/businet/defence/mas/mas.html and http://www.eads.com/xml/content/OF00000000400004/0/64/41488640.asx
– US Geological Survey, “Minerals Yearbook 2005,” September 2006, p. 5.2.
– Boeing Website Image Gallery of Small Diameter Bomb: http://www.boeing.com/companyoffices/gallery/images/missiles/sdb/sdb.html
– Boeing Image Gallery: http://www.boeing.com/companyoffices/gallery/images/missiles/sdb/sdb.html
– Alcan Press Release, “Alcan Contributes to Success of Eighth Ariane 5 ECA Launch,” Dec 13th, 2006.
http://www.dassault-aviation.com/
– “Pacific 2004, International Naval and Maritime Exposition for the Southern Pacific,” Aerospace Maritime and Defence Conference, http://www.ideea.com/pacific2004/embassy/smithbriefing.pdf
– US Geological Survey, “Minerals Yearbook 2005,” September 2006, p. 5.5.
– Alcan Press Release, “Alcan to Explore Development of Bauxite Mine and Alumina Refinery in Madagascar,” September 11th 2006.
– Alcan’s website, http://www.alcant.co.za/history.html
– Grapevine, Issue 10, July 13, 2007. Viðtal einnig á /?p=870
– RUV News, 26-02-2007, http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item145391/. Note that RUV has Alcoa and Alcan confused.
– International Rivers Network & EarthLife Africa, “Eskom’s Expanding Empire – The Social and Ecological Footprint of Africa’s Largest Power Utility,” June 2003, http://www.irn.org/programs/safrica/index.php?id=030601eskomfactsheet.html
– Asia-Pacific Human Rights Network, “Rio Tinto’s Record and the Global Compact,” July 13th 2001, http://www.corpwatch.org/article.php?id=623.
– SBS Australia’s television program Dateline in a report on Rio Tinto, August 2000.
– Wikipedia Germany (22-7-2007), http://de.wikipedia.org/wiki/Sandline-Affäre
– Contract between PNG Government and Sandline: http://coombs.anu.edu.au/SpecialProj/PNG/htmls/Sandline.html.
– Sarei v Rio Tinto, 456 F.3d 1069 (9th Cir. 2006), USA.

Náttúruvaktin