Archive for September, 2007

Sep 28 2007

Þarfar ábendingar til íslenskra fréttamanna um mótmæli!


natturuvaktin.jpgNáttúruvaktin.com

Tilefni mótmæla er aðalatriðið!

a. Hverju er verið að mótmæla?
b. Kannið málið
c. Eru áhyggjur mótmælenda réttmætar?
d. Kannið málið
e. Ef þið kannist ekki við neitt…
f. …er kominn tími til að kanna málið!

Read More

Sep 14 2007

Bréf til Þórunnar Sveinbjarnardóttur, 12 September 2007


Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra

Í dag, 12. september, standa grasrótarhreyfingar víða um heim fyrir alþjóðlegum mótmælum gegn stóriðju. Á Íslandi hefur hreyfingin Saving Iceland ákveðið að helga þennan dag stuðningi við baráttu íbúa í nágrenni Þjórsár. Af því tilefni viljum við undirrituð koma eftirfarandi á framfæri. Read More

Sep 01 2007

Atvinnumótmæli og umræðuplan


saving-iceland-grundartanga-07 “Í svona samtökum eru aðeins þroskaheftir kjánar með brostna sjálfsmynd. Hópinn má leggja að jöfnu við glæpaklíkur, fótboltabullur, málaliða og hryðjuverkamenn. Liðsmennirnir búa líklegast ekki allir í 101 Reykjavík og eru krakkar úr austurbænum. Réttast væri að hýða þá opinberlega og þeir sem tala máli hópsins eru landráðamenn.”
.
Guðni Elísson
Lesbók
1. september 2007

Það er áhugavert að sjá hvernig íslenska fjölmiðlasamfélagið mótar með sér skilning á náttúruverndarsamtökunum Saving Iceland en fulltrúar þeirra aðhyllast borgaralega óhlýðni og hefur gjarnan verið lýst sem atvinnumótmælendum í samtímaumræðunni. Hér eru fyrst tvær almennar skilgreiningar á hugtakinu. Höfundar eru Ingi Geir Hreinsson og Birkir Egilsson:

“Ofdekraður, ofmenntaður einstaklingur sem aldrei hefur unnið handtak á sinni ævi, aldrei migið í saltan sjó eða tekið skóflustungu [...]. Fjölmiðlasjúk fyrirbæri sem koma vælandi inn í kerfið sem þau eru að mótmæla. Með þessu er ég ekki að gera lítið úr þeirra málstað. Það er fólk sem virkilega trúir og vill breytingar. Ég legg til að þau skilji sig frá þessu fólki, eins og Saving Iceland, það er þeim bara til minnkunar.”

Read More