ágú 12 2010
Ákall Saving Iceland!
Takið þátt í baráttunni gegn iðnvæðingu einhverra sérstæðustu náttúrusvæða Evrópu og grípið til beinna aðgerða gegn stóriðju!
Baráttan fram að þessu
Baráttan heldur áfram til varnar stærstu ósnortnu víðernum Evrópu. Síðastliðin fimm ár hafa sumarbúðir beinna aðgerða á Íslandi beinst gegn álbræðslum, risastíflum og jarðgufuvirkjunum. Eftir þá skelfilegu eyðileggingu sem fylgdi byggingu stærstu stíflu Evrópu við Kárahnjúka og mikilla jarðgufuvirkjana í Hengli, er enn tími til að rjúfa „snilldaráætlun“ valdhafa um stíflur í öllum stærstu jökulánum, gernýtingu allra helstu háhitasvæðanna og byggingu álvera, olíuhreinsistöðva, gagnavera og sílikonverksmiðja. Þessar framkvæmdir myndu ekki aðeins eyðileggja einstakt landslag og vistkerfi, heldur einnig hafa í för með sér stórfellda aukningu á útblæstri gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Töluvert hefur verið vísað í áfallakenningu Naomi Klein á þessari síðu, jafnvel svo mjög að Svartsokku sjálfri þyki nóg um, því engum er hollt að miða alla sína samfélagsgreiningu við eina bók. Þó er svo að þegar í bígerð eru tilkoma einkahers, einkavæðing háhitans og bygging álvers sem ekki er til nóg orka fyrir, allt á sama landsvæðinu, þá hringja óhjákvæmilega viðvörunarbjöllur undir tónfalli áfallakenningarinnar. Þegar líðandi stund er greind í ljósi hennar kemur í ljós kunnuglegt mynstur; verið er að spila með okkur eins og peð á taflborði. Það sem verra er: við spilum með undir styrkri stjórn „vinstrimanna“.