Archive for August, 2005
Aug 25 2005
ALCOA, Grænþvottur, Hlutdrægni fjölmiðla, Impregilo, Impregilo, Kárahnjúkar, Kúgun, Landsvirkjun, Lýðræðishalli, Lög, Lögregla, Mengun, Náttúruvernd, Ólafur Páll Sigurðsson, Spilling, Stóriðja
Sirkús
Ágúst 2005
Kannski er það viðeigandi að viðtalinu seinki um nokkrar mínútur vegna rassíu lögreglunnar í íverustað mótmælendanna. Þannig er það í það minnsta: Ólafur Páll Sigurðsson hringir og segir: okkur seinkar. Þau koma samt, Ólafur Páll og Birgitta Jónsdóttir eru komin niður á Laugaveg eftir kortér. Blaut eins og veðrið býður upp á: sannkallað hálendisveður. Kannski er það þannig að ef þú ferð ekki til Kárahnjúka þá koma Kárahnjúkar til þín.
Veit það ekki. Allavega þá eru þau sest. Það fer vel um þau. Það er rigning úti. Já.
Það er víst enginn bíll að elta þau núna eftir að fréttastofa sjónvarpsins sýndi myndskeið þar sem óeinkenndur lögreglubíll hringsólar á eftir bíl Ólafs Páls í hringtorgi í Öskjuhlíðinni en lætur sig svo loks hverfa þegar bílstjórinn uppgötvar að fréttamaður er að festa eltingaleikinn á myndband. Bíllinn sem fylgdi Ólafi Páli hefur nú fundið sér nýjan förunaut, Rúnar Guðbrandsson leikstjóra og börnin hans. Read More
Aug 21 2005
Hlutdrægni fjölmiðla, Kapítalismi, Kárahnjúkar, Kúgun, Lýðræðishalli, Lögregla, Náttúruvernd, Saving Iceland, Spilling, Stóriðja
Haukur Már Helgason fjallar um aðgerðir Saving Iceland sumarið 2005.
Þegar talað er í niðrandi tóni um “atvinnumótmælendur” er látið í veðri vaka að þeir stingi tilviljanakennt niður fæti hvar sem eitthvað gerist, og mótmæli því. Þetta er næstum rétt en þar með alveg rangt. Því framvinda heimsins er ekki jafn tilviljanakennd og hún getur virst í nærmynd. Eftir að önnur kerfi lögðu upp laupana er nú eitt kerfi í þann mund að sölsa undir sig veröld manna eins og hún leggur sig, yfirleitt nefnt kapítalismi. Það felur einkum í sér að skiptagildi hluta og fyrirbæra í heiminum er gert hærra undir höfði en raungildi nokkurs í lífi manneskju. Enda er skiptagildi þægilegra en raungildi, að því leyti að það má mæla og því má safna. Read More
Aug 20 2005
ALCOA, Kárahnjúkar, Kúgun, Landsvirkjun, Lýðræðishalli, Lögregla, Náttúruvernd, Saving Iceland, Stóriðja
Ólafur Páll Jónsson fjallar um aðgerðir lögreglu gegn Saving Iceland sumarið 2005.
Í sumar risu tjaldbúðir við Kárahnjúka þar sem stærsta jarðvegsstífla Evrópu mjakast upp. Á ferðinni var hugsjónafólk sem stendur ekki á sama um stærstu óspilltu víðerni Evrópu og margar af dýrmætustu náttúruperlum Íslands. Það vildi mótmæla virkjanaframkvæmdum og byggingu risaálbræðslu við Reyðarfjörð (á við 2 álbræðslur Alcan í Straumsvík). Í lok júlí dró til tíðinda eftir að mótmælendur fóru inn á vinnusvæði og ollu töfum og tjóni sem Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar, segir að nemi tugum eða hundruðum þúsunda. Nokkrir mótmælendur voru handteknir og leyfið fyrir tjaldbúðunum var afturkallað. Á meðan búðirnar voru fluttar að Vaði í Skriðdal barst lögreglunni liðsauki svo ekki færri en 20 lögreglumenn á 9 bílum vöktuðu vinnusvæðið og víðernin norðan Vatnajökuls – fólk í sumarfríi var stoppað og spurt á hvaða leið það væri, hverra erinda og hvort það hefði séð til grunsamlegra mannaferða. Read More
Aug 17 2005
Actions, ALCOA, Bechtel, Grænþvottur, Impregilo, Kárahnjúkar, Kúgun, Landsvirkjun, Langisjór, Lýðræðishalli, Lög, Lögregla, Náttúruvernd, Saving Iceland, Skagafjörður, Skjálfandafljót, Stóriðja, Þjórsárver
Saving Iceland
VIÐ SEM MÓTMÆLT HÖFUM stóriðju og stórfelldum spjöllum á náttúru Íslands undanfarna mánuði við Kárahnjúka og víðar á landinu viljum að gefnu tilefni gefa eftirfarandi yfirlýsingu:
Við mótmæli okkar höfum við beitt aðferðum sem eiga sér ef til vill ekki langa sögu hérlendis en aðgerðir þær sem við höfum staðið fyrir flokkast ekki undir lögbrot. Við erum breiður hópur fólks Íslendinga og útlendinga víðsvegar að og það sem sameinar okkur er virðing fyrir náttúrunni, óþol gagnvart valdníðslu, kúgun og mannréttindabrotum. Við höfum tjáð andúð okkar á stórfelldum spjöllum á einstökum náttúruperlum á hálendi Íslands með því að:
Dreifa upplýsingum um stóriðjuæði íslenskra stjórnvalda sem speglast í fyrirhuguðum virkjanaframkvæmdum sem nú liggja á teikniborði Landsvirkjunar og annarra orkufyrirtækja svo sem í Þjórsárverum, Langasjó, Skjálfandafljóti og í Skagafirði. Read More