Archive for November, 2008

Nov 11 2008

Hlutabréf Alcoa lækka vegna framleiðsluminnkunnar


Saving Iceland Crane Action 2006 Í dag lækkuðu hlutabréf Alcoa um 7,6% eftir að fyrirtækið tilkynnti að það myndi minnka framleiðslu um 350 þúsund tonn á ári. Niðurskurðurinn fer fram í álverum Alcoa í Ferndale, Washington og Baie Comeau, Quebec. Fyrir ekki svo löngu síðan greindi fyrirtækið frá 256 þúsund tonna niðurskurði í Rockdale, Texas sem þýðir að samdráttur á framleiðslu Alcoa er 15%.

Alcoa tilkynnti einnig að 2,2 milljón tonna stækkun álvers í Wagerup, Ástralíu yrði frestað. Áætlaður kostnaður verkefnisins er á bilinu 3-4 milljónir dollara og sagði Alcoa að verkefninu yrði frestað þar til markaðshorfur verða betri. Sérfræðingar segja að enn sé offramleiðsla á áli.

Read More

Nov 11 2008

Búðarhálsvirkjun og framleiðsluaukningu Rio Tinto Alcan frestað


Tungnaá Landsvirkjun hefur tilkynnt að útboð vegna framkvæmda við Búðarhálsvirkjun verði frestað um þrjá mánuði. Það þýðir að fyrirhuguð framleiðsluaukning Rio Tinto Alcan í Straumsvík verður ekki að veruleika á næstunni. Landsvirkjun hyggst reisa Búðarhálsvirkjun í Tungnaá, vestan við Langasjó.

Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun munu kosta um það bil 25 milljarða króna og á virkjunin að geta framleitt 85 MW af raforku. Rio Tinto Alcan hyggst auka framleiðslu sína um 40 þúsund tonn á ári án þess að stækka álverið. Fyrirtækið vill samt sem áður ennþá stækka álverið þrátt fyrir að íbúar Hafnarfjarðar hafi kosið gegn stækkuninni í íbúakosningu vorið 2007. Gagnaver Verne Holding hefur einnig skrifað undir samning við Landsvirkjun um orku frá Búðarhálsvirkjun.

Read More