Archive for July, 2007
Jul 28 2007
ALCOA, Corruption, Hlutdrægni fjölmiðla, Landsvirkjun, Lýðræðishalli, Media bias, Náttúruvernd, Repression, Saving Iceland
SAVING ICELAND KREFST ÞESS AÐ FRÉTTASTOFA RUV BIRTI SANNANIR FYRIR AÐDRÓTTUNUM SÍNUM UM AÐ MÓTMÆLENDUR ÞYGGI FÉ FYRIR MÓTMÆLI OG HANDTÖKUR, AUK ÞESS AÐ FRÉTTASTOFA DRAGI TIL BAKA FULLYRÐINGAR SÍNAR ÁSAMT AFSÖKUNARBEIÐNI Á SAMA ÁBERANDI TÍMA OG UPPHAFLEGA FRÉTTIN VAR SEND ÚT.
SAVING ICELAND SKORAR JAFNFRAMT Á HEIMILDARMANN RUV AÐ GEFA SIG FRAM OG STANDA FYRIR MÁLI SÍNU. Read More
Jul 24 2007
Báxít, Grænþvottur, Hergagnaiðnaður, Jaap Krater, Kúgun, Landsvirkjun, Mengun, Rio Tinto
LANDSVIRKJUN Á AÐILD AÐ ÁLVERI RIO TINTO-ALCAN Í SUÐUR AFRÍKU, SEM ER KEYRT ÁFRAM MEÐ KOLUM OG KJARNORKU
Fréttatilkynning
HAFNARFJÖRÐUR – Saving Iceland hefur lokað aðgangi að álveri Rio Tinto-ALCAN í Straumsvík. Um það bil 20 mótmælendur hafa læst sig saman og klifrað upp í krana á vinnusvæðinu. Saving Iceland mótmælir fyrirhuguðu álveri Rio Tinto-ALCAN á Keilisnesi eða Þorlákshöfn, stækkun álversins í Hafnarfirði og nýju álveri í Suður-Afríku sem verður keyrt áfram af kolum og kjarnorku.
,,Mótmæli gegn Alcan hafa skilað sínu. Hafnfirðingar höfnuðu að sjálfsögðu fyrirhugaðri stækkun í Straumsvík og nýlega varð fyrirtækið að hætta þáttöku sinni í báxítgreftri í Kashipur, Norðaustur Indlandi, vegna mótmæla gegn mannréttindabrotum þeirra og umhverfiseyðingu. Alcan hefur verið ásakað fyrir menningarútrýmingu í Kashipur , þar sem námur og stíflur hafa þegar neytt 150.000 manns til þess að yfirgefa heimkynni sín, mest megnis innfædda . Norsk Hydro hætti þáttöku sinni í verkefninu eftir að lögreglan pyntaði og kveikti í mótmælendum, og þá kom Alcan inn í málið.” segir Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson frá Saving Iceland.
Read More
Jul 23 2007
Climate Change, Hlutdrægni fjölmiðla, Media bias, Repression, Saving Iceland
Natturan.is
9. júlí, 2007
Um helgina var haldin ráðstefna til bjargar íslenskri náttúru, að Hótel Hlíð í Ölfusi undir yfirskriftinni „Hnattrænar afleiðingar stóriðju og stórstíflna“.
Ræðumenn á ráðstefnunni voru m.a. Dr. Eric Duchemin, adjunct prófessor við háskólann í Québec, Montréal, Kanada og rannsóknarstjóri DREX environnement, hefur verið í forsvari fyrir Intergovernmental Panel on Climate Change (IPCC) Sameinuðu þjóðanna. Rannsóknir hans hafa leitt til þess að vatnsorka er ekki sjálfkrafa flokkuð sem ,,hrein orka”. Hann fjallaði um áhrif stórstíflna á loftslag. Auk þess stigu þeir Ómar Ragnarsson, Guðbergur Bergsson og Andri Snær Magnason í ræðupúlt og margir fleiri.
Read More
Pages: 1 2
Jul 22 2007
ALCOA, Century Aluminum, Reykjavik Energy
Þegar þetta er skrifað er Orkuveita Reykjavíkur, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, að vinna að stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirhugað er að selja orku frá virkjuninni til Century og ALCAN-Rio Tinto til að knýja stækkanir á þeim álverum sem þegar eru til staðar í Hvalfirði og Hafnarfirði og fyrir nýjum álverum við Keflavík og Þorlákshöfn. 30% framleidds áls nýtist við vopnaframleiðslu.
Stækkun álvers Alcan í Hafnarfirði var hafnað með íbúakosningu og aðrar fyrirhugaðar álbræðslur á suðvesturhorninu er ekki búið að ákveða fyrir fast. Sitjandi ríkisstjórn segist vera andstæð frekari álbræðslum en enn er unnið að stækkun á Hellisheiði fyrir 23 milljarða króna. Íslensku þjóðinni verður þröngvað til að borga brúsann. Þegar stækkuninni er lokið verður ísland neytt til að reisa fleiri álbræðslur því raforkuna verður að selja til að fá höfuðstólinn tilbaka. Í millitíðinni borga gróðurhúsbændur tvöfalt meira en Century fyrir rafmagn.
Fyrirtækin sem hagnast á þessu eru kunn að mannréttindabrotum og umhverfisglæpum.
Read More
Jul 22 2007
Actions, ALCOA, Amazon, Hergagnaiðnaður, Landsvirkjun, Norsk Hydro, Orkuveita Reykjavíkur, Rey, Saving Iceland
Rio Tinto utilized private mercenary forces Sandline and
Executive Outcomes through its joint venture Bougainville Copper with
the Papuan Govt. (
source 1 | 2).
Ná í fylgiskjal í pdf formi | Myndir frá aðgerðinni
Þegar þetta er skrifað er Orkuveita Reykjavíkur, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, að vinna að stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirhugað er að selja orku frá virkjuninni til Century og ALCAN-Rio Tinto til að knýja stækkanir á þeim álverum sem þegar eru til staðar í Hvalfirði og Hafnarfirði og fyrir nýjum álverum við Keflavík og Þorlákshöfn. 30% framleidds áls nýtist við vopnaframleiðslu.
Stækkun álvers Alcan í Hafnarfirði var hafnað með íbúakosningu og aðrar fyrirhugaðar álbræðslur á suðvesturhorninu er ekki búið að ákveða fyrir fast. Sitjandi ríkisstjórn segist vera andstæð frekari álbræðslum en enn er unnið að stækkun á Hellisheiði fyrir 23 milljarða króna. Íslensku þjóðinni verður þröngvað til að borga brúsann. Þegar stækkuninni er lokið verður ísland neytt til að reisa fleiri álbræðslur því raforkuna verður að selja til að fá höfuðstólinn tilbaka. Í millitíðinni borga gróðurhúsbændur tvöfalt meira en Century fyrir rafmagn.
Fyrirtækin sem hagnast á þessu eru kunn að mannréttindabrotum og umhverfisglæpum.
Read More
Jul 21 2007
Media bias, Repression, Saving Iceland
Af bloggsíðu Ómars Ragnarssonar
22.7.2007
Ráðstefna um stóriðju og umhverfismála sem haldin var heila helgi á Hótel Hlíð í Ölfusi vakti litla sem enga athygli fjölmiðla. Ég fylgdist með upphafi hennar og kom þar stuttlega við síðar og þann tíma sem ég staldraði þarna við var augljóslega vandað til dagskrár og fólk frá ýmsum heimshornum flutti áhugarverða og fræðandi fyrirlestra fyrir fullum sal áhugasams fólks víðvegar að úr heiminum.
Glæsilegir tónleikar margra af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar sem haldnir voru við Austurvöll hurfu nánast í fjölmiðlum.
En það var ekki fyrr en nokkrir þátttakendanna hófu mótmælaaðgerðir í öðrum stíl en Íslendingar eiga að venjast að fjölmiðlar brugðust við af áhuga.
Read More
Pages: 1 2
Jul 20 2007
Reykjavik Energy
Fréttatilkynning
Í framhaldi af fyrri tilkynningu í dag
Í dag fóru 25 mótmælendur frá Saving Iceland inn í höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur (O.R.) og hengdu upp borða sem á var letrað ‘VOPNAVEITA REYKJAVÍKUR?’. Borðinn var ekki hengdur upp úti á húsinu vegna veðurs. Mótmælendur stöldruðu við í húsinu frá kl. 15.15 til kl. 16.00.
Talsmaður O.R., Páll Erland, staðhæfir að starfsmenn O.R. hafi veitt mótmælendum jarðarber og boðið Saving Iceland að hengja upp borðann inni í húsinu. Páll Erland kann að vera umhugað um að ræða um jarðaber við gesti O.R., en það er hins vegar ekki rétt að O. R. hafi boðið mótmælendum að hengja upp borða sem bendir á þá staðreynd að fyrirtækið selur orku til aðila sem eru viðriðnir vopnaframleiðslu og alvarleg brot á mannréttindum (eins og sjá má í fyrri fréttatilkynningu okkar.)
Saving Iceland hafa haft samband við Orkuveitu Reykjavíkur og beðið um heimild til þess að hengja upp umræddan borða utan á höfuðstöðvar O.R.. Auk þess að við æskjum þess að fulltrúar O.R. taki þátt í opnum umræðum við okkur um siðgæði þess að selja orku til fyrirtækja sem stunda glæpsamlega iðju, eins og bæði Century og Alcan-Rio Tinto gera.
Frekari upplýsingar:
http://www.savingiceland.org
Fleiri myndir…
Jul 20 2007
ALCOA, Grænþvottur, Hagfræði, Hergagnaiðnaður, Kúgun, Náttúruvernd, Orkuveita Reykjavíkur, Saving Iceland, Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, Spilling
HÆTTIÐ ORKUFRAMLEIÐSLU FYRIR STRÍÐSREKSTUR!
REYKJAVÍK – Í dag heimsótti trúðarher Saving Iceland höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1 þar sem þeir komu fyrir borða sem á stóð Vopnaveita Reykjavíkur?. Saving Iceland krefst þess að O.R. stöðvi orkusölu til álfyrirtækjanna Century og ALCAN-Rio Tinto, en 30% framleidds áls fer til hernaðar- og vopnaframleiðslu (1).
Í morgun var ræðismannsskrifstofu Íslands í Edinborg lokað, þegar lásar voru límdir og rauðri málningu var hent á húsið með yfirskriftinni ‘Íslandi blæðir’. Á Miðvikudag lokaði Saving Iceland veginum að álveri Century á Grundartanga. Read More
Jul 19 2007
Hlutdrægni fjölmiðla, Kúgun, Lýðræðishalli, Lög, Lögregla, Náttúruvernd, Saving Iceland
Í ágúst 2006 fullvissaði Óskar Bjartmarz yfirlögregluþjónn lesendur Morgunblaðsins um að kylfum væri ekki beitt gegn mótmælendum. Með greininni birtist þessi mynd sem var tekin sömu viku á Kárahnjúkum.
Bréf til Blaðsins frá Saving Iceland aktívista
Leiðarinn ‘Vantrú á málstaðnum’ (3. júlí) eftir ritstjóra Blaðsins, Ólaf Þ. Stephensen, er svipuð öðrum greinum sem hafa verið birtar í íslenskum dagblöðum í aðdraganda ráðstefnu Saving Iceland (S.I.) í Ölfusi nú í sumar. Þessar greinar hafa einkennst af viljandi fáfræði um umræðuefnið, þ.e.a.s. mótmælendurna sem eins og ég starfa með eða innan S.I.
Ég vil persónulega mótmæla harðlega þeim ásökunum að ég sé rekin áfram af þörf fyrir hugsunarlaus átök, sé andlega vanheil á einhvern hátt eða að líf mitt vanti svo sterklega spennu að ég þurfi að ferðast til afskekktrar eyju langt í norðri á hverju sumri til þess eins að lenda í rifrildi við lögregluþjóna sem vilja henda mér út úr tjaldinu mínu. Hvað þykist Ólafur vita um líf okkar eða hvað það er sem drífur okkur áfram þegar hann hefur aldrei lagt það á sig að tala við okkur og komast að því sjálfur? Read More
Jul 18 2007
Actions, Century Aluminum, Ecology, Grænþvottur, Icelandic Alloys/ELKEM, Mengun, Náttúruvernd, Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson, Spilling
Fréttatilkynning
GRUNDARTANGA – Í dag hafa samtökin Saving Iceland lokað eina aðfangaveginum frá þjóðvegi 1. að verksmiðjum Century / Norðuráls og ELKEM / Íslenska járnblendifélagsins. Saving Iceland samtökin eru andsnúin áformum um nýja álbræðslu Century í Helguvík og stækkun á verksmiðju Járnblendifélags Íslands. Aðgerðafólk hafa hlekkjað sig saman í málmrörum og myndað þannig mannlegan tálma á veginum um leið og nokkrir hafa tekið yfir byggingakrana á svæðinu.
Century Aluminum ætlar að reisa annað álver í Helguvík með 250.000 tonna árlegri framleiðslugetu. Álver þeirra á Grundartanga hefur þegar verið stækkað í 260.000 tonn.
Um þessar mundir er verið að fara yfir unhverfismat á Helguvíkur bræðslunni. (1) Þetta mat var gert af verkfræðisamsteypunni HRV (Hönnun/Rafhönnun/VST).
Read More